Íslensk Ættleiðing

Hafðu samband

Aftur ti Kína

30.01.2012

Mæðgurnar Hrafnhildur Ming og Þórunn Sveinbjarnardóttir ætla að segja félögum í ÍÆ frá ferð sinni til Kína í haust, sýna myndir og svara spurningum á fundi laugardaginn 4. febrúar kl. 13 í húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti í stofu 415.

Skrifstofan lokuð í dag 26. janúar 2012

26.01.2012

Skrifstofan verður lokuð í dag 26. janúar 2012.

Afgreiðsluhraði í Kína

17.01.2012

Kínverska ættleiðingarmiðstöðin (CCCWA) hefur staðfest afgreiðslu umsókna sem skráðar voru inn fyrir 15. ágúst 2006.

Skemmtinefnd auglýsir!

16.01.2012

Sunnudaginn 22.janúar ætlum við að hittast í Ævintýragarðinum í Skútuvogi 4 kl 11 til 13.
Aðgangur er 800 kr. á barn, frítt fyrir fullorðna. Tilkynna þarf þátttöku og taka fram fjölda barna á isadopt@isadopt.is fyrir 18. janúar 2012.

Íslensk ættleiðing á afmæli í dag

15.01.2012

Síðdegis þann 15. Janúar árið 1978 kom nokkur hópur fólks saman í Norræna húsinu í þeim tilgangi að stofna ættleiðingafélag. Félagið hlaut nafnið Ísland Kórea og var síðar sameinað félagi sem stofnað var nokkru síðar. Hið sameinaða félag hlaut nafnið Íslensk ættleiðing og er því 34 ára í dag.

Fyrir tveimur árum síðan, á 32 ára afmæli félagsins, birtum við stofnfundargerð félagsins á vefnum okkar. Hún er hér ennþá. En það er líka athyglisvert að velta fyrir sér umhverfinu sem Íslensk ættleiðing var stofnuð í, við kíktum í blöð dagsins 15. janúar 1978.

Fréttarit ÍÆ desember 2011

31.12.2011

Fréttarit ÍÆ ágúst 2011 er komið út og hefur verið sent félagsmönnum í pdf formi.

Í ritinu er fjallað um ættleiðingar á árinu og greint frá afstöðu ÍÆ til flutnings á veitingu leyfa til ættleiðinga frá Búðardal til Reykjavík.