Miðlun ættleiðinga
Miðlun alþjóðlegra ættleiðinga er á vegum félagsins Íslensk ættleiðing sem hefur löggildingu dómsmálaráðuneytis til að annast milligöngu um ættleiðingar barna frá eftifarandi ríkjum; Indlandi, Kína, Kólombíu, Makedónía, Pólland,Tékklandi og Tógó. Félagið hefur starfað síðan 1978 og rekur skrifstofu í Reykjavík. Þangað geta allir snúið sér sem óska eftir upplýsingum um ættleiðingar erlendra barna. Hlutverk félagsins felst milligöngu um ættleiðingar í samstarfi við erlend stjórnvöld, miðlun upplýsinga, fræðslustarfi og félagsstarfi fyrir félagsmenn.
Ættleiðingar erlendis frá / alþjóðlegar ættleiðingar
Ættleiðing barns getur verið góð lausn á barnleysi fyrir mörg hjón. Mikilvægt er að íhuga þennan möguleika fljótlega eftir að ófrjósemisvandamál koma í ljós.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á högum ættleiddra barna í nágrannalöndum okkar eru allar jákvæðar og benda til þess að þau aðlagist vel nýjum heimkynnum sínum.
Við ættleiðingu skulu hagsmunir barnsins ávallt hafðir að leiðarljósi. Markmið ættleiðingar er að finna barninu gott, ástríkt heimili, þar sem barnið á þess kost að vaxa úr grasi við bestu aðstæður.
Kostnaður við ættleiðingar
Kostnaður við ættleiðingu er mismunandi eftir löndum. Greiða þarf uppihald barnsins, lögfræði- og dómskostnað og ferðakostnað en væntanlegir kjörforeldrar fara oftast sjálfir til að sækja barn sitt.
Stæðsti hluti ættleiðingarkostnaðar er í erlendri mynt og er háður stöðu gengis hverju sinni.
Félagið Íslensk ættleiðing er hvorki umsagnar né úrskurðaraðili í ættleiðingarmálum.
Umsókn
Sýslumaðurinn í Búðardal veitir leyfi til ættleiðingar sbr. 1. gr. ættleiðingarlaga nr. 130 frá 1999, og gefur út forsamþykki vegna umsóknar um ættleiðingu erlends barns, að fenginni umsögn barnaverndarnefndar, og eftir atvikum ættleiðingarnefndar.
Helstu kröfur íslenskra stjórnvalda eru eftirfarandi:
- umsækjendur séu 25 - 45 ár
- andlega og líkamlega hraustir
- hafi ekki sakaferil
- geti framfleytt fjölskyldu með góðu móti
- giftir umsækjendur hafi verið í sambúð í a.m.k þrjú ár. Fyrir umsækjendur í óvígðri sambúð er gerð krafa um minnst fimm ára sambúðartíma
Þó ber að hafa í huga að yfirvöld í þeim ríkjum sem Íslensk ættleiðing hefur milligöngu um ættleiðingar frá óska alltaf eftir hjúskaparvottorði.
Einhleypir geta fengið forsamþykki til ættleiðingar ef sérstaklega stendur á og ættleiðing er ótvírætt talin barninu til hagsbóta.
Erlend yfirvöld leggja áherslu á að börnin eignist bæði móður og föður þannig að takmarkaðir möguleikar eru fyrir einhleypa að ættleiða erlendis frá. Má búast við að biðtími sé mun lengri en hjá hjónum.
Biðtími
Biðtíminn er venjulega á bilinu eitt og hálft til þrjú ár frá því að fólk skráir sig á biðlista, mismunandi eftir löndum og aðstæðum.
Ekki er hægt að ættleiða fleiri en eitt barn í einu, nema upplýsingar hafi komið frá erlendum yfirvöldum um að börnin séu systkin.
Erlend stjórnvöld hafa stundum aðrar áherslur en þau íslensku. Umsækjendur þurfa að kynna sér vel hvaða reglur gilda og hvar þeir eiga mesta möguleika. Allar upplýsingar um slík atriði fást á skrifstofu Íslenskrar ættleiðingar.
Fjöldi ættleiddra barna
Undanfarin ár hafa að jafnaði verið ættleidd um 15 börn af erlendum uppruna árlega. Flest hafa börnin komið frá Indlandi, Kína, Tékklandi eða Kólombíu nú síðustu ár. Fáeinar ættleiðingar hafa verið frá öðrum löndum. Til Íslands hafa alls verið ættleidd um 600 börn fædd erlendis. Fjöldi barna var áður ættleiddur frá Kóreu, Indónesíu, Guatemala, Rúmeníu og Sri Lanka, þau fyrstu eru nú að nálgast fertugt.
Börnin
Ástæður þess að börnin eru yfirgefin í fæðingarlandi sínu geta verið margvíslegar. Oft eru mæðurnar ógiftar ungar konur sem eiga þess ekki kost að ala upp barn þar sem mikil skömm er að eignast barn utan hjónabands. Sums staðar er fjöldi barna í hverri fjölskyldu takmarkaður, stundum hamla veikindi eða dauðsföll því að fjölskyldan geti alið barnið upp. Einnig getur fátækt verið ástæða ættleiðingar.
Börnin eru á ábyrgð stjórnvalda í upprunalandi sínu og víða er ættleiðing til útlendinga ekki möguleg fyrr en fullreynt er að ekki finnst fjölskylda fyrir barnið í upprunalandinu.
Stjórnvöld ákveða þau skilyrði sem uppfylla þarf til að fá heimild til ættleiðingar og erlendir umsækjendur verða að hlýta þeim reglum sem gilda í landinu.
Erlendir félagsráðgjafar eða fulltrúar stjórnvalda velja fjölskyldu fyrir barnið og meta þá hvaða fjölskylda hentar fyrir hvert barn því hagur barnsins er alltaf í fyrirrúmi. Þá getur farið svo að biðlistaröð breytist, því ef ein fjölskylda hefur kosti sem henta ákveðnu barni þá velja erlendu aðilarnir hana eflaust fyrir barnið þótt önnur fjölskylda sé á undan á biðlista sem ekki hefur sömu kosti fyrir þetta barn.
Erlend stjórnvöld hafa líka fulla heimild til að vinna málin eins og þau telja rétt og geta synjað umsækjendum um ættleiðingu þótt þeir hafi forsamþykki hér heima. Sem betur fer gerist slíkt sjaldan en valdið er í höndum erlendra stjórnvalda.
Heilsufarsupplýsingar
Öll ættleidd börn þurfa sérlega góða umönnun og aðlögunartíma eftir að þau koma heim til fjölskyldunnar. Dvöl á barnaheimili veitir barninu ekki þá örvun sem það þarfnast þannig að börn sem koma frá barnaheimilum eru oft á eftir jafnöldrum sínum í þroska og getu. Með góðum aðbúnaði hjá kjörforeldrum vinna þau furðu fljótt upp það sem á skorti.
Þegar upplýsingar berast um barn fylgja læknisvottorð. Þau er mis ýtarleg eftir aðstæðum og löndum en alltaf gerð eftir bestu getu. Því yngra sem barnið er því erfiðara er að meta heilsufar þess og þroska í framtíðinni. Mörg barnanna frá Kolkata eru fyrirburar og koma inn á barnaheimilið strax eftir fæðingu. Börnin frá Kína eru ekki alltaf yfirgefin strax eftir fæðingu og því vantar oft upplýsingar um heilsu þeirra á fyrstu mánuðum. Kjörforeldrar fá alltaf allar upplýsingar sem berast um börnin en verða, eins og aðrir foreldrar, að taka ákveðna áhættu. Komi síðar fram einhverjar þroskahamlanir eða sjúkdómar hjá barni þeirra verða þeir að ráða fram úr vandanum.
Gestur Pálsson barnalæknir hefur haft umsjón með læknisskoðun ættleiddra barna eftir komu til Íslands. Er heilsufar þeirra kannað og þau fá síðan þá þjónustu sem ungbarnaeftirlit og heilsugæsla veita öllum börnum á Íslandi. Gestur er félaginu og væntanlegum foreldrum einnig til ráðgjafar.
Heilsufarsupplýsingar
Öll ættleidd börn þurfa sérlega góða umönnun og aðlögunartíma eftir að þau koma heim til fjölskyldunnar. Dvöl á barnaheimili veitir barninu ekki þá örvun sem það þarfnast þannig að börn sem koma frá barnaheimilum eru oft á eftir jafnöldrum sínum í þroska og getu. Með góðum aðbúnaði hjá kjörforeldrum vinna þau furðu fljótt upp það sem á skorti.
Þegar upplýsingar berast um barn fylgja læknisvottorð. Þau er mis ýtarleg eftir aðstæðum og löndum en alltaf gerð eftir bestu getu. Því yngra sem barnið er því erfiðara er að meta heilsufar þess og þroska í framtíðinni. Mörg barnanna frá Kolkata eru fyrirburar og koma inn á barnaheimilið strax eftir fæðingu. Börnin frá Kína eru ekki alltaf yfirgefin strax eftir fæðingu og því vantar oft upplýsingar um heilsu þeirra á fyrstu mánuðum. Kjörforeldrar fá alltaf allar upplýsingar sem berast um börnin en verða, eins og aðrir foreldrar, að taka ákveðna áhættu. Komi síðar fram einhverjar þroskahamlanir eða sjúkdómar hjá barni þeirra verða þeir að ráða fram úr vandanum.
Gestur Pálsson barnalæknir hefur haft umsjón með læknisskoðun ættleiddra barna eftir komu til Íslands. Er heilsufar þeirra kannað og þau fá síðan þá þjónustu sem ungbarnaeftirlit og heilsugæsla veita öllum börnum á Íslandi. Gestur er félaginu og væntanlegum foreldrum einnig til ráðgjafar.
Gjaldskrá Íslenskrar ættleiðingar
Félagsgjald kr. 5.500
Félagsgjald ber öllum umsækjendum um ættleiðingu að greiða ár hvert þar til ættleiðing hefur átt sér stað.
Staðfestingargjald kr. 75.000
Staðfestingargjald skal greitt við skráningu hjá félaginu og áður en aðstoð við undirbúning forsamþykkis fer fram.
Gjaldið fer til greiðslu kostnaðar vegna vinnu félagsins innanlands, áður en umsókn er send út. Kostnaðurinn er tilkominn m.a. vegna rekstrar skrifstofu, upplýsingaefnis, viðtala, samskipta við yfirvöld innanlands og í upprunalandinu, póstkostnaðar og annars tilfallandi kostnaðar sem hlýst af vinnu við umsókn um forsamþykki.
Umsóknargjald kr. 155.000
Umsóknargjald skal greitt þegar umsókn er send út.
Gjaldið fer til greiðslu kostnaðar vegna vinnu félagsins við umsóknina til upprunalandsins. Kostnaðurinn er tilkominn m.a. vegna reksturs skrifstofu, samskipta við yfirvöld í upprunalandinu, póstkostnaðar, þýðingarvinnu fyrir félagið (ekki vegna einstakra umsókna) og annars tilfallandi kostnaðar sem hlýst af vinnu við sendingu umsóknar til upprunalandsins.
Allur ferðakostnaður, sem og uppihald í upprunalandi er greiddur af umsækjendum sjálfum. Þá greiða umsækjendur sjálfir fyrir þýðingarkostnað á gögnum vegna umsóknar sinnar og fyrir aðstoð tengiliðar í upprunalandinu. Þessi kostnaður getur verið mismunandi hár milli landa þar sem t.d. er mismunandi hversu lengi umsækjendur þurfa að dvelja í upprunalandinu og hversu margar ferðir þarf að fara þangað.
Umsækjendur greiða jafnframt sjálfir fyrir gerð eftirfylgniskýrslna og þýðingu þeirra, Íslensk ættleiðing sér um að fá þær stimplaðar og sendir út.
Umsækjendur greiða fyrir þau vottorð sem safna þarf með umsókn um forsamþykki.
í dag