Fréttir

Félagsmenn á landsbyggðinni geta greitt atkvæð

Vegna væntanlegs aukaaðalfundar Íslenskrar ættleiðingar er vert að vekja athygli á því að stjórn félagsins hefur fjallað um möguleika félagsmanna sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins á að greiða atkvæði á fundum félagsins. En málið var tekið fyrir í kjölfar fyrirspurnar frá félagsmanni.

Það er álit stjórnar að ekkert í lögunum félagsins standi í vegi fyrir því að þeir félagsmenn sem ekki eiga heimangengt á aðalfund félagsins fái að nota atkvæðarétt sinn. Stjórn vísar til almennra reglna og viðmiða þar um. Umboðsmaður félagsmanns skal þannig leggja fram skriflegt, dagsett og vottað umboð.

Við minnum á að félagar þurfa að vera skuldlausir til að geta tekið að sér störf fyrir félagið og hafa atkvæðisrétt á fundi.


Svæði