Fréttir

Í leit að uppruna – undirbúningurinn, ferðin og upplifunin.

Lisa og Sebastian
Lisa og Sebastian

Fræðslufyrirlestur Íslenskrar ættleiðingar

Fræðslufyrirlestur maímánaðar verður að þessu sinni tvöfaldur og verður haldinn í hátíðarsal Tækniskólans (Gamla Sjómannaskólanum - Háteigsvegi) þann 25. og 26. maí klukkan 14:00.

Lisa Kanebäck og Sebastian Johansson eru vinir sem bæði voru ættleidd frá Kolkata á Indlandi til Svíþjóðar. Þau fóru í upprunaferð á síðasta ári og unnu sem sjálfboðaliðar á barnaheimilunum sem þau voru ættleidd frá í nokkra mánuði.

Lisa og Sebastian segja frá vangaveltum um uppruna sinn, skipulagningu ferðalagsins og því sem þau upplifðu í Kolkata. Fyrirlesturinn er sérstaklega fyrir ættleidd ungmenni (15 ára og eldri) sem hafa áhuga á upprunaleit og skiptir ekki máli hvaðan þau eru ættleidd. Ekki er gert ráð fyrir foreldrum á þennan fyrirlestur, en fyrirlesturinn á sunnudeginum er ætlaður þeim.
Með þessum viðburði vonast félagið til að geta hafið metnaðarfullt starf fyrir börn/fullorðna sem hafa verið ættleiddir með milligöngu Íslenskrar ættleiðingar.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

Foreldrar ættleiddra barna
Sunnudagur 26.maí – kl. 14:00
Frítt inn fyrir félagsmenn – kr. 1000 fyrir utanfélagsmenn
Skráning á isadopt@isadopt.is

Hér segja Lisa og Sebastian frá vangaveltum um uppruna sinn, hvernig þau ræddu við foreldra sína og hvernig þau upplifðu samband sitt og foreldra sinna í leitinni að uppruna sínum. Þau segja frá ferðalaginu og upplifun sinni á Indlandi.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

Hér er hægt að nálgast auglýsingu um fræðslufyrirlesturinn.


Svæði