Fréttir

Leiðbeinendur fyrir undirbúningsnámskeið

Íslensk Ættleiðing auglýsir eftir leiðbeinendum til að halda undirbúningsnámskeið fyrir fólk sem er að ættleiða í fyrsta skipti.

Vegna aukinna umsókna til félagsins sér ÍÆ sér ekki annað fært en að þjálfa upp fleiri teymi til þess að sjá um þessa fræðslu.

Skilyrði er að hafa þekkingu af ættleiðingum, þ.e.a.s persónulega reynslu, annað hvort að vera ættleiddur sjálf(ur) eða hafa ættleitt og eða að hafa fagþekkingu á sviði félags-, sál- eða uppeldisfræði.

Vinsamlega sendið umsóknir með ítarlegum uppl um aldur, störf, menntun og reynslu í tölvupósti til : stjorn@isadopt.is

Við hvetjum bæði karla og konur til að sækja um.  Umsóknarfrestur er til 31. júlí.

Ef þið óskið frekari upplýsinga um hlutverk/starf leiðbeinenda á námskeiðunum biðjum við ykkur um að senda þær fyrirspurnir einnig á netfangið stjorn@isadopt.is

Stjórn Íslenskrar Ættleiðingar.


Svæði