Fréttir

Aðalfundur 13.3.2019

Fundargerð aðalfundar Íslenskrar ættleiðingar, þriðjudaginn 13. mars 2019, kl. 20.30. 

Fundarstaður: Framvegis, miðstöð símenntunar, Skeifunni 11b, 108 Reykjavík.
Mætt af hálfu stjórnar: ElísabetHrund Salvarsdóttir stjórnarformaður, Ingibjörg Valgeirsdóttir varaformaður, Lísa Björg Lárusdóttir, Magali Mouy, Sigrún Eva Grétarsdóttir og Sigurður Halldór Jesson. Fjarverandi var Lára Guðmundsdóttir.
Mætt af hálfu starfsfólks skrifstofu: Kristinn Ingvarsson, framkvæmdarstjóri og Ragnheiður Davíðsdóttir, verkefnastjóri.
Fundargerð aðalfundar ritaði: Ragnheiður Davíðsdóttir

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar.
  3. Kjör stjórnar.
  4. Ákvörðun árgjalds.
  5. Lagabreytingar
  6. Önnur mál

Elísabet Hrund Salvarsdóttir stjórnarformaður Íslenskrar ættleiðingar setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Stjórnarformaður tilnefndi Eygló Jónsdóttur fundarstjóra og var það samþykkt af fundarmönnum. Fundarstjóri tilnefndi Ragnheiði Davíðsdóttur sem fundarritara og var það einnig samþykkt af fundarmönnum.
Fundarstjóri kallaði eftir mótmælum um boðun fundarins.
Engin andmæli bárust og telst fundurinn því löglega boðaður. 
Fundarstjóri fór þá yfir dagskrá fundarins og bauð stjórnarformanni að kynna skýrslu stjórnar. 

1.     Skýrsla stjórnar:
Stjórnarformaður kynnti og fór yfir skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2018.

2.     Ársreikningar félagsins
Fundarstjóri bauð stjórnarformanni í pontu á ný til að kynna ársreikning félagsins fyrir síðastliðið ár. Fundarstjóri ber ársreikning 2018 til samþykktar. Ársreikningur samþykktur samhljóða fyrir starfsárið 2018.

3.     Kjör stjórnar:
Stjórn Íslenskrar ættleiðingar á að vera samkvæmt samþykktum félagsins skipuð 7 manns. Að þessu sinni er kosið um fjögur sæti stjórnarmanna. Fjögur framboð bárust.
Sitjandi stjórnarformaður Elísabet Hrund Salvarsdóttir gefur áfram kost á sér til stjórnarsetu. Lísa Björg Lárusdóttir og Magali Mouy gefa áfram kost á sér til stjórnarsetu. Ari Þór Guðmannsson býður sig einnig fram. Þau teljast sjálfkjörin og eru stjórnarmeðlimir næstu tveggja ára. 

4.     Ákvörðun um árgjald:
Stjórnarformaður leggur til að árgjald félagsins haldist óbreytt, 2.900 krónur.
Fundarstjóri spyr hvort einhver mótmæli eða komi með aðrar tillögur.
Svo er ekki og árgjald telst því samþykkt. 

5.     Lagabreytingar
Breytingar á samþykktum þarf að skila inn fyrir 31.janúar 2019. Engar tillögur að breytingum voru lagðar fram að þessu sinni.

6.     Önnur mál.
Engin önnur mál tekin fyrir.

Fundarstjóri þakkar fyrir góðan fund og er fundi slitið kl. 20:55


Svæði