Fréttir

Stjórnarfundur 11.september 2019

Stjórnarfundur Íslenskrar ættleiðingar, miðvikudaginn 11. september  kl. 20:30 í húsnæði félagsins að Skipholti 50b.  

Mætt: Ari Þór Guðmannsson, Elísabet Hrund Salvarsdóttir, Ingibjörg Valgeirsdóttir og Magali Mouy.
Sigurður Halldór Jesson tók þátt í gegnum fjarfundarbúnað.

Einnig sat fundinn Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri.

Dagskrá stjórnarfundar  

  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar   
  2. Mánaðarskýrslur maí, júní og júlí 
  3. NAC ráðstefna í september 
  4. Tógó 
  5. Barna – og unglingastarf 
  6. Önnur mál  

1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar 
Fundargerð samþykkt

2. Mánaðarskýrslur maí, júní, júlí og ágúst.
Umræðu um skýrslur frestað.

3. NAC ráðstefna í september
Formaður fer yfir stöðuna vegna ráðstefnunnar 19. – 21.september. Allt að verða tilbúið. Senda annan póst á félagsmenn til að vekja athygli á ráðstefnunni og viðburðum tengdum henni.

4. Tógó
Framkvæmdarstjóri fer yfir ferðalag til Tógó, mjög áhugaverð ferð. Hann mun útbúa minnisblað og senda á stjórn til upplýsinga.

5. Barna– og unglingastarf
Farið yfir væntanlegt starf í vetur, stjórn samþykkir samhljóða að starfið haldi áfram, framkvæmdarstjóri lætur félagsráðgjafa félagsins vita og klárar úrfærsluna á starfinu.

6. Önnur mál
Stjórn upplýst um væntanlegt viðtal við framkvæmdarstjóra sem mun birtast í Mannlíf 13. september. 

Fundi lokið 22:30

Næsti fundur miðvikudaginn 9.október kl. 20:30


Svæði