Fréttir

Hvað er svona merkilegt við tengsl?

Mjög áhugaverður fyrirlestur.
Mjög áhugaverður fyrirlestur.

Undanfarin ár hafa rutt sér til rúms kenningar um mikilvægi öruggra tengsla barna og foreldra þeirra. En hvað meinum við þegar við tölum um tengsl? Og hvernig stuðlum við að öruggum tengslum við börnin okkar?

Í erindinu verða kynnt hugtök sem varpa ljósi á tengslamyndun. Jafnframt verður fjallað um hvernig hægt sé að skilja og bregðast við vanda barna sem ekki hafa myndað örugg tengsl í frumbernsku.

Sæunn Kjartansdóttir er sálgreinir. Hún er einn stofnenda Miðstöðvar foreldra og barna sem sérhæfir sig í meðferð foreldra og ungbarna. Hún er höfundur bókanna Árin sem enginn man, Áhrif frumbernskunnar á börn og fullorðna og Fyrstu 1000 dagarnir. Barn verður til. 

Fyrirlesturinn fer fram í hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg kl. 20:00, miðvikudaginn 27. janúar.  Þeim sem eiga ekki heimangengt er boðið upp á fyrirlesturinn á netinu. 

Skráning er á heimasíðu Íslenskrar ættleiðingar. Ókeypis er fyrir félagsmenn en kostar kr. 1000 fyrir utanfélagsmenn.  

 

 

 

 


Svæði