Upprunaferðir til Kína

BLAS (Bridge of Love and Adoption Service) sér um aðstoð við að heimsækja barnaheimili í Kína.
Einnig geta þau séð um að bóka hótel og aðrar ferðir í Kína sé þess óskað. 

Til þess að sækja um heimsókn á barnaheimili þarf að fylla út þetta form og senda til Íslenskrar ættleiðingar að minnsta kosti 3 mánuðum fyrir áætlaðan heimsóknartíma á barnaheimilið. Með þessum formi þarf einnig að senda afrit af vegabréfum allra ferðalanga og ættleiðingarskírteini (Adoption registration certificate) en það er rauð bók sem var afhent í Kína við ættleiðingu. 

Kostnaður vegna heimsóknar er um RMB 2000 (árið 2018) Þetta þarf að greiða til Guangdong Adoption Registry Service Center og er greitt úti í Kína. Athugið að verð getur breyst. 

Annar kostnaður er misjafn og fer eftir hversu mikillar aðstoðar er óskað eftir, hvaða hérað er verið að heimsækja, hóteli og fleira.

Dæmi um einfalda ferðaáætlun:

Dagur 1, komið í hérað, leiðsögumaður tekur á móti ykkur, farið á hótelið
Dagur 2, keyrt til barnaheimilis, farið aftur í hérað 
Dagur 3, farið á flugvöllinn

Dæmi um verð: USD 1400, innifalið er hótel með morgunverði (1 herbergi með aukarúmi), leiðsögumaður og keyrsla.

Svæði