Fréttir

DV - „Við erum komin heim!!!“ Fjölskyldan komin frá Kólumbíu og sameinuð á Íslandi

Friðrik Kristinsson og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir eru loksins komin heim frá Kólumbíu með dætur sínar þær Helgu Karólínu og Birnu Salóme. Þau greina frá þessu á Facebook síðu fjölskyldunnar. Þau hafa verið föst í Kólumbíu frá því í desember fyrir ári síðan en þá komu þau fyrst til landsins í þeim tilgangi að ættleiða stúlkurnar tvær. Eitthvað fór úrskeiðis þegar kom að pappírsvinnunni með þeim afleiðingum að þau þurftu að reka mál sitt fyrir réttarkerfinu í Kólumbíu. Stór veisla var haldin í tilefni af komu fjölskyldunnar heim til Íslands. Í upphafi færslunnar á Facebook segir einfaldlega: „Við erum komin heim!!!!“ Ljóst er að þungu fargi er af þeim létt. 

„Það var alveg meiriháttar að hitta alla aftur og voru miklir fagnaðarfundir. Stelpunum þótti mjög gaman að hitta alla ættingja sína,“ segir í færslunni á Facebook. „Okkur finnst við vera svo óendanlega rík og erum svo þakklát fyrir yndislegu stelpurnar okkar.“ Þar koma þau einnig á framfæri þakklæti til allra þeirra sem sýnt hafa þeim stuðning síðustu mánuði, „án ykkur hefðum við ekki getað gert þetta.“ 

Hjónin fóru út í desember síðastliðnum til að sækja tvær litlar stelpur sem þau hugðust ættleiða frá Kólumbíu og bjuggust þá við að vera úti í kringum sex vikur. Kólumbískur dómstóll neitaði þeim um að ættleiða stúlkurnar en áður höfðu þau fengið heimild kólumbískra yfirvalda fyrir ættleiðingunni. Stúlkurnar eru tveggja og fjögurra ára gamlar og hafa myndað náin tengsl á þessum mánuðum sem þau hafa dvalið saman úti. 

Hér fyrir neðan má lesa Facebook-færslu þeirra í heild sinni: 

„Við erum komin heim!!!

Við lögðum af stað á þriðjudagskvöldið með Lufthansa til Frankfurt. Þar gistum við eina nótt og komum svo heim með Icelandair í dag. Þegar við komum til Íslands beið fjölskyldan okkar eftir okkur á flugvellinum. Það var alveg meiriháttar að hitta alla aftur og voru miklir fagnaðarfundir. Stelpunum þótti mjög gaman að hitta alla ættingja sína. Við fórum heim með fjölskyldu okkar og var haldin stór veisla í tilefni af komu Helgu og Birnu til landsins.

Þetta er búið að vera hreint út sagt alveg meiriháttar dagur. Við erum svo glöð að vera komin heim með dætur okkar. Okkur finnst við vera svo óendanlega rík og erum svo þakklát fyrir yndislegu stelpurnar okkar. Loksins eru þær komnar heim til Íslands þar sem þær eiga heima, komnar með dótið sitt, rúmið sitt, föt sín og allt sem þeim vantar. Lífið er fullkomið!!!Kæru vinir við viljum þakka ykkur fyrir stuðninginn, allar fallegu kveðjurnar og hvatningarorðin, án ykkur hefðum við ekki getað gert þetta. Það hefur oft verið sagt að það sé gott að vera Íslendingur þegar eitthvað bjátar á og gætum við ekki verið meira sammála því. 

Kærar kveðjur Friðrik og Bjarnhildur“

http://www.dv.is/frettir/2012/12/7/vid-erum-kom-heim/


Svæði