Fréttir

Ættleiðingar eru hafnar frá Tógó

Ættleiðingarsamband okkar við Tógó er komið í fulla virkni. Með þeim árangri að tvö munaðarlaus börn frá Tógó hafa nú eignast fjölskyldu.

Það var hið nýstofnaða félag Alþjóðleg ættleiðing sem árið 2009 fór fyrir eigin reikning og óeigingjarnt sjálfboðastarf til Tógó með það að markmiði að koma á samböndum þar í landi. Í kjölfarið óskaði félagið eftir því við íslensk stjórnvöld og gerður yrði ættleiðingarsamningur milli Íslands og Tógó.

Eftir að Alþjóðleg ættleiðing sameinaðist Íslenskri ættleiðingu tók ÍÆ upp þráðinn gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Ögmundur Jónasson ráðherra ættleiðingarmála beitti sér fyrir því þegar hann var nýtekinn við embætti að kraftur var settur í að ná samningi við Tógó og Íslensk ættleiðing fékk löggildingu til að hafa milligöngu um ættleiðingar frá Tógó í febrúar 2011.

Að byggja upp ættleiðingarsamband og gagnkvæmt traust sem er grundvöllur fyrir því að slíkt samband virki vel er töluverð vinna. Í janúar fóru t.d. framkvæmdastjóri ÍÆ og Árni Sigurgeirsson stjórnarmaður til Tógó og áttu fundi með fulltrúum stjórnvalda og öðrum sem að ættleiðingarferlinu koma í Tógó.

Þessi vinna sem staðið hefur síðan 2009 er nú að skila þeim árangri að tvö munaðarlaus börn frá Tógó hafa nú eignast fjölskyldur á Íslandi. Eitt barn er þegar komið heim og upplýsingar um annað barn eru komnar til landsins og fer fjölskyldan innan tíðar til Tógó að sækja barnið.

 

Þessi mynd birtist á vefsíðu Alþjóðlegrar ættleiðingar 8. apríl 2009
með frétt af sendinefnd Alþjóðlegarar ættleiðingar
sem hélt á fund með Ibrahimu félagsmálaráðherra Tógó.


Svæði