Fréttir

Ættleiðingarstyrkur

Ingibjörg Jónsdóttir og Guðrún Sveinsdóttir áttu fund með Jóni Kristjánssyni félagsmálaráðherra og Magnúsi Stefánssyni  formanni fjárlaganefndar Alþingis 31.maí.

Fundarefni var ættleiðingarstyrkirnir og undirbúningur þeirra og fengust þær upplýsingar að nú er verið að skipa nefnd eða vinnuhóp sem á að ganga frá tillögum um málið, Íslensk ættleiðing mun væntanlega fá að tilnefna mann í nefndina.  Enn er tími til að koma frumvarpi inn á haustþing og verður gert ráð fyrir fjármagni í styrkina á fjárlögum næsta árs.  


Svæði