Fréttir

Afmælismálþing

16. mars, 13-17 á Hótel Natura 
Í mars mun félagið standa fyrir afmælismálþingi og bjóða þar uppá metnaðarfulla dagskrá. Aðalfyrirlesari er Sarah Naish, með erindi sem heitir Therapeutic parenting and adoption.  Auk Söruh verða fleiri áhugaverð erindi á dagskrá. Nánari upplýsingar munu verða kynntar fljótlega.  
Sarah er búin að starfa í þrjá áratugi innan málefna ættleiddra ásamt því að vera foreldri fimm ættleiddra barna. Hún hefur því gríðarlega reynslu af málaflokknum, bæði faglega og persónulega. Sarah var valin Kona ársins árið 2014 af samtökum kvenna í atvinnulífinu í Bretlandi.  
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar störf og bakgrunn Söruh Naish, ættu að smella hér 


Svæði