Fréttir

Dagskrá útilegu ÍÆ 2006

Dagskrá útilegunnar verður að venju með fjölbreyttu sniði.

 
 
Engin formleg dagskrá er fyrirhuguð á föstudeginum, þar sem
gestir eru að mæta á svæðið og koma sér fyrir.
 
Dagskrá laugardagsins:
 
Kl. 10:00 Andlitsmálun
Kl. 10:30—12:00 Hestar koma í heimsókn og börnum boðið á bak.
Kl. 12:00 Pylsuveisla
Kl. 14:00 - 15:00 Ratleikur.
Kl. 15:45 Hópmyndataka
Kl 16:00 Söngstund og að henni lokinni mætir  hinn
    sívinsæli nammikall
Kl. 17:00 Leikir
Kl. 19: 00  Grillin tilbúin til notkunar.
Hoppukastalinn verður í gangi frá hádegi
Um kvöldið taka gestir snúning á dískóteki í salnum.
 
Á sunnudeginum er engin skipulög dagskrá þar sem sumir eiga langa ferð fyrir höndum og vilja taka daginn fyrr en aðrir.
 
 
Nokkrar hagnýtar upplýsingar.
Sundlaugin á Reykhólum heitir Grettislaug og er opin alla daga vikunnar milli kl 10 og 22.
Sundlaugin er útilaug, 25 x 12.5 metrar.  Mesta dýpi 2,75 m.  Tveir heitir pottar.
Í sund kostar 300 kr fyrir fullorðna og 125 kr. fyrir börn.
Verslunin Jónsbúð á  Reykhólum  er opin frá 9 - 21 á virkum dögum en frá 10- 21 um helgar.
Hlunnindasýning er í sama húsi og Upplýsingamiðstöðin og er þar margt að skoða t.d. hreiður og egg, fuglar af ýmsum tegundum, uppstoppaðir selir og svo mætti lengi telja. Heiðursgestur á sýningunni er uppstoppaður haförn í öllu sínu veldi, þó svo að örninn hafi aldrei verið talinn til hlunninda.
Hlunnindasýningin er opin frá kl 10 til 17
Af gefnu tilefni eru hundaeigendur beðnir að hafa hundana í bandi og utandyra.
 
Útilegunni 2007 hefur ekki verið valin staður en það verður auglýst á heimasíðunni þegar þar að kemur.
 
Muna að á Reykhólum er enginn hraðbanki og því nauðsynlegt að hafa með sé aura.

Svæði