Fréttir

DV - Samningur um ættleiðingar frá Rússlandi á lokasprettinum

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari
Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Formleg beiðni hefur verið send til rússneskra stjórnvalda þess efnis að ættleiðingarsambandi við Rússland verði komið á. Íslensk ættleiðing hefur undanfarin þrjú ár unnið að þessu og segir á vef samtakanna að það sé því sérstaklega ánægjulegt að greina frá því að síðastliðinn föstudag fóru lokadrög að samningi um alþjóðlegar ættleiðingar milli Íslands og Rússlands með hraðsendingu til Rússlands.

Það var í árslok 2011  sem Lavrov utanríkisráðherra Rússlands lýsti því yfir á fundi með Össuri Skarphéðinssyni ráðherra að Rússar væru nú reiðubúnir að gera slíkan samning. Á fundinum sjálfum lofaði hann jafnframt að setja sína bestu menn í að ljúka samningi sem fyrst, segir á vef Íslenskrar ættleiðingar. 

„Íslensk ættleiðing var full bjartsýni við þessar fréttir en í blaðagrein sem Össur skrifaði í desember 2011 benti hann á að „Vafalítið eru mörg ljón á veginum ennþá sem við félagi Ögmundur þurfum saman að yfirvinna.“

Össur reyndist þarna sannspár, því mikil vinna hefur verið lögð í það í ráðuneytum innanríkis- og utanríkis á Íslandi að rita samning sem fer vel að lögum beggja landanna. Af hálfu ættleiðingarfélagsins hefur Elín Henriksen skipulagt vinnuna og fylgt því fast eftir að vinna við samninginn hafi ávalt verið ofarlega í forgangsröðinni í verkefnabunkanum hjá stjórnsýslunni,“ segir á vef Íslenskrar ættleiðingar, en í maí á síðasta ári fóru fulltrúar innanríkisráðuneytisins á fund með starfsbræðrum sínum í Rússlandi til að bera saman bækur sínar og komu heim með þær fregnir að vel gæti orðið um ættleiðingarsamband að ræða milli landanna.

Unnið var að því að endurrita nokkur atriði samningsins og þýða hann og hefur þeirri vinnu nú verið lokið. Ástæða er því til að ætla að á næstu vikum komi fulltrúi rússneska ríkisins hingað til lands til að undirrita samninginn. Einungis þyrfti að endurrita fáein atriði og þýða samninginn.

Þessari vinnu er nú lokið og við höfum ástæðu til að ætla að á næstu vikum fáum við fulltrúa rússneska ríkisins í heimsókn til landsins til að undirrita samninginn.


Svæði