Fréttir

Grunnskólaspjall

Ertu að huga að grunnskólagöngu barnsins þíns eða er barnið þitt í fyrstu bekkjum grunnskóla? Þriðjudagskvöldið 1. júní kl. 20:30 mun Pasnefnd félagsins bjóða upp á spjallkvöld um upphaf grunnskólagöngu.

Við munum hittast á skrifstofu ÍÆ í Austurveri. Kristbjörg S. Richter, grunnskólakennari og móðir og Sigríður Viðarsdóttir, móðir og sjúkraliði, munu hefja spjallið með stuttu innleggi. Við viljum hvetja alla áhugasama um að mæta og eiga góða kvöldstund með mikilvægu umræðuefni.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Pasnefnd Íslenskrar ættleiðingar


Svæði