Fréttir

Hamingjustund

Ásta, Alastair, Kevin, Dagný og Alice
Ásta, Alastair, Kevin, Dagný og Alice

Nú í morgun sameinaðist fjölskylda í Most í Tékklandi.

Alastair og Dagný ásamt dætrunum tveimur Ástu og Alice fóru til Tékklands til að hitta Daníel Kevin, litla bróður.

Það var mögnuð stund þegar þau hittust í fyrsta skipti. Þegar Daníel Kevin sá foreldra sína í fyrsta skipti hljóp hann að og náði í myndirnar sem þau höfðu sent honum og höfðu verið notaðar til í undirbúningnum fyrir komu þeirra. Hann var alveg með það á hreinu hverjir voru að koma. Daníel Kevin er duglegur, hugrakkur og forvitinn prakkari og stutt í brosið hjá honum.
Fjölskyldan er í sjöunda himni með daginn og Ásta og Alice trúa því varla enn að þær séu loksins búnar að eignast lítinn bróður.

Umsókn Alastair og Dagnýjar var samþykkt af yfirvöldum í Tékklandi 28. febrúar 2011 og voru þau pöruð við Daníel Kevin 10. desember 2014. Þau voru því á biðlista í Tékklandi þrjú ár og níu mánuði.

Þetta er önnur fjölskyldan sem sameinast með milligöngu Íslenskrar ættleiðingar á þessu ári. Nú hafa 17 börn verið ættleitt frá Tékklandi til Íslands.




Svæði