Fréttir

Jólaball í Reykjavík

Í Reykjavík verður haldið jólaball 6. desember kl. 14:00 - 16:00.  Jólasveinarnir og félagar þeirra sem mættu í fyrra ætla að koma aftur á þessu ári og passa uppá að það verði a.m.k. jafn mikið fjör og í fyrra. Það er aldrei að vita hvað þeir draga uppúr pokahorninu... Miðaverð fyrir félagsmenn: Börn - kr. 500 Fullorðnir - kr. 1.000 Miðaverð fyrir utanfélagsmenn: Börn - kr. 1.350 Fullorðnir - kr. 2.750

Allir velkomnir - börn og foreldrar, ömmur og afar, frændur og frænkur og allir hinir.

Ummæli um síðasta jólaball: Þetta er flottast jólaball sem ég hef farið á; flottar gjafir, glæsilegar veitingar og stórskemmtilegir jólasveinar - Takk fyrir frábært jólaball. Tek undir með öðrum að þetta var eitt það flottasta sem ég hef farið á. Meira að segja 12 ára sonurinn var ánægður og þá er mikið sagt - Jólaball Íslenskrar ættleiðingar er alltaf skemmtilegur viðburður. Takk kærlega fyrir okkur


Svæði