Fréttir

RÚV - Komin heim frá Kólumbíu með dæturnar

Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson komu til Íslands í gær með ættleiddar dætur sínar, Helgu Karólínu og Birnu Salóme frá Kólumbíu. Hjónin hafa undanfarið ár beðið ásamt dætrum sínum eftir því að komast heim.

Dómstólar í Kólumbíu reyndust fjölskyldunni erfiðir, en hún fékk loks brottfararleyfi fyrir nokkrum vikum. Miklir fagnaðarfundir urðu í Leifsstöð í gær þegar fjölskyldan kom til landsins.

 

 


Svæði