Fréttir

Mbl - Tógó í samstarf við Ísland um ættleiðingar

Frá Tógó. AP
Frá Tógó. AP

Innanríkisráðuneytið hefur gefið út löggildingu fyrir félagið Íslenska ættleiðingu til að annast milligöngu um ættleiðingar frá Tógó. Tógó er fyrsta samstarfsríki Íslands í Afríku á sviði ættleiðinga en bæði ríkin eiga aðild að Haag-samningnum um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingar milli landa. 

Í tilkynningu innanríkisráðuneytisins kemur fram að unnið hefur verið að því í ráðuneytinu að koma á samstarfi við Tógi að beiðni Íslenskrar ættleiðingar.

Tógósk yfirvöld gera þær kröfur að samskipti ríkjanna fari fram milliliðalaust og kallaði það á breytingar á reglugerð um ættleiðingarfélög, sem nú hafa verið gerðar. Innanríkisráðuneytið mun því verða í samskiptum við yfirvöld í Tógó en Íslensk ættleiðing mun engu að síður annast allan undirbúning mála hér á landi vegna ættleiðinga þaðan.

Félagið leiðbeinir væntanlegum kjörforeldrum um allt er viðvíkur ættleiðingum frá Tógó, eins og við ættleiðingar frá öðrum löndum. Þeim, sem óska eftir forsamþykki sýslumanns til að ættleiða barn frá Tógó, er því skylt að leita milligöngu um ættleiðinguna hjá félaginu. 

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/02/16/togo_i_samstarf_vid_island_um_aettleidingar/


Svæði