Fréttir

Námskeið falla niður

Undirbúningsnámskeið fyrir verðandi kjörforeldra sem halda átti í lok mánaðrins hefur verið fellt niður og hefur þeim sem eru a biðlista eftir námskeiði verið tilkynnt um það.

Innanríkisráðuneytinu hefur verið tilkynnt um þessa ákvörðun.

Í tilkynningu til ráðuneytisins segir m.a:

Eitt af hlutverkum löggilts ættleiðingarfélags er að bera ábyrgð á að væntanlegir kjörforeldrar, sem félagið annast milligöngu fyrir, sæki námskeið til undirbúnings ættleiðingu á erlendu barni, svo sem kveðið er á um í 5. gr. reglugerðar um ættleiðingarfélög.

Ákvæði reglugerða (um undirbúningsnámskeið fyrir verðandi kjörforeldra) eiga sér stoð í lögum um ættleiðingar og eru í fullu samræmi við Haagsamninginn um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingu milli landa og handbókar við þann samning, enda er undirbúningur væntanlegra kjörforeldra einn af mikilvægustu þáttunum í að tryggja velferð kjörbarns. Það er niðurstaða fjölda rannsókna að góð þjálfun og fræðsla væntanlegra kjörforeldra sé lykilatriði.

Innanríkisráðuneytinu er vel kunnugt um þröngan fjárhag ættleiðingarfélagsins. Frá árinu 2009 hafa fulltrúar félagsins verið í viðræðum við ráðuneytið og forvera þess um breytingar á fjárframlagi til félagsins. Fyrir liggja drög að þjónustusamningi milli Innanríkisráðuneytisins og Íslenskrar ættleiðingar en ekki hefur tekist að tryggja fjárframlag svo ljúka megi samningsgerðinni. Á þessum tíma hafa aðstæður félagsins versnað eins og kunnugt er og skemmst er að minnast þess að fresta varð aðalfundi félagsins vegna óvissu um gerð þjónustusamnings.

Aðstæður ættleiðingarfélagsins eru nú þannig að ekki er svigrúm til að endurnýja samning við höfund námsefnis, ekki eru aðstæður til að velja nýja leiðbeinendur og þjálfa þá og þar að auki er ekki réttlætanlegt að taka fjárhagslega áhættu af námskeiðshaldi meðan óvissa ríkir um gerð þjónustusamnings milli Innanríkisráðuneytisins og Íslenskrar ættleiðingar.

Með vísan til 19. gr. reglugerðar um ættleiðingarfélög er ráðuneytinu sem eftirlitsaðila með ættleiðingarfélaginu, hér með tilkynnt að við ríkjandi aðstæður getur Íslensk ættleiðing ekki haldið námskeið fyrir verðandi kjörforeldra með sama hætti og áður.

 

Tilkynningu stjórnar ÍÆ til Innanríkisráðuneytis
má lesa í heild sinni

í nýju fréttariti Íslenskrar ættleiðingar sem má sækja á þessa slóð.


Svæði