Fréttir

Stjórnarfundur 14.04.1981

Mættir voru stjórnarmeðlimir allir. Fundarefni var samning bréfs til félagsmanna, um það sem er á döfinni. Ekkert hefur gengið í Mauritius málum. Enn hefur ekki náðst í Hollis símleiðis en hann mun vera fluttur að heiman og ekki hefur tekist að ná í hann í því númeri sem fyrrv. kona hans gefur upp. Nú eru einnig sex vikur síðan Harold Johnson á Mauritius var skrifað og hann krafinn svara en ekkert svar hefur borist enn. Reynt hefur verið að komast að símanúmeri mr. Johnson en illa gengið þar til á fundinum, en þá gátu Landsímastúlkur fundið númerið og stendur til að hringja strax 15.4. Verður því vonandi hægt að fá einhvern botn í það mál á næstunni. Nú hafa 2 aðilar sent pappíra til Indónesíu og munu fystu hjónin fara út á næstunni og ná í nýfæddan drenga. Virðist þessi kontaktaðili starfa mjög vel og nákvæmlega. Lítið hefur verið spurst fyrir um Indónesíu til félagsins. Nú nýlega komu 3 börn frá Tyrklandi  1-2 ára. Virðist sem hér geti etv. orðið framhald á.

Valgerður Baldursdóttir


Svæði