Fréttir

dv.is - Sigurður var búinn að gefast upp: Þá gerðist kraftaverkið - Fann lokapúslið sem vantaði í líf hans - „Ég bjóst aldrei við þessu“

Sigurður segir að ferlið hafi verið erfitt.
Sigurður segir að ferlið hafi verið erfitt.

„Mér datt aldrei í hug að fara að leita að blóðforeldrum mínum fyrr en ég sá þættina Leitin að upprunanum. Þá kviknaði þessi löngun hjá mér. Auðvitað fann ég alltaf að það vantaði þetta púsl í líf mitt. Ég fann að ég væri öðruvísi en aðrir í fjölskyldunni,“ segir Sigurður Donys Sigurðsson í samtali við DV. Sigurður er ættleiddur frá Gvatemala. Hann ákvað að leita að blóðforeldrum sínum eftir að hafa horft á þættina Leitin að upprunanum á Stöð 2. Leitin gekk vonum framar og Sigurður hefur verið í sambandi við föður sinn og bróður í nokkra mánuði, en þeir ræddu saman í fyrsta skipti á Skype fyrir nokkrum dögum. Sigurð dreymir um að einn daginn muni þeir feðgar fallast í faðma.

Átti öðruvísi æsku en önnur börn

„Ég vissi auðvitað hvaðan ég kem og var kunnugt um að ég hefði verið gefinn til ættleiðingar. Frekari upplýsingar hafði ég ekki. Ég velti oft fortíð minni fyrir mér þótt ég hafi ekki verið opinskár með uppruna minn við fólk í kringum mig. Sem barn vissi ég alltaf að ég væri öðruvísi. Ég átti öðruvísi æsku en önnur börn áður en ég kom til Íslands. Skólaganga mín var erfið, ég átti erfitt með að aðlagast og mynda tengsl,“ segir Sigurður og bætir við að hann hafi einnig verið ótrúlega heppinn.

„Ég gæti ekki óskað mér betri fjölskyldu. Ég á frábæra foreldra og yndisleg systkini sem styðja mig í einu og öllu. Þörfin til að vita meira um uppruna minn var alltaf til staðar. Það hefur alltaf vantað það púsl í líf mitt.“

Algeng eftirnöfn einfölduðu ekki leitina

Sigurður hóf leitina að blóðforeldrum sínum með hjálp kærustu sinnar, Unnar Óskar.

„Við byrjuðum að leita eftir að hafa horft á þættina í fyrra. Ég var viðbúinn að finna jafnvel ekkert þar sem ég vissi að fjölskylda mín í Gvatemala bjó við mikla fátækt og veikindi þegar hún gaf mig. Ég gat einnig ekki vitað hvort blóðforeldrar mínir hefðu áhuga á að vita af mér þó svo ég myndi finna þau.“

Fyrsta skref Sigurðar var að óska eftir ættleiðingarpappírum frá innanríkisráðuneytinu. Þá kom í ljós að fæðingarstaður hans var Cobán. Þar var einnig að finna nöfn blóðforeldra hans.

„Eftirnöfn blóðforeldra minna eru Garcia og Torres, sem eru sennilega með algengustu eftirnöfnum í Gvatemala. Það auðveldaði ekki leitina. Hvorugt þeirra fannst á Facebook eða á Google. Við sendum tölvupóst hingað og þangað og á öll opinber netföng sem við fundum skráð í Cobán. Það skilaði engu,“ segir Sigurður.

„Unnur var ekki tilbúin að gefast upp. Eftir miklar pælingar fór hún á Facebook-síðu fótboltaliðsins í Cobán. Hún sendi skilaboð á alla í liðinu sem hétu annað hvort Torres eða Garcia og spurði hvort þeir könnuðust við nöfn foreldra minna. Það bar ekki árangur. Hins vegar svaraði maður okkur sem upplýsti að eiginkona hans ynni hjá Þjóðskránni í Gvatemala og gæti flett upp nöfnunum.“

Daginn eftir fékk Sigurður sorgarfregnir:

„Ég fékk að vita að móðir mín væri látin. Hún lést úr veikindum árið 2005. Mér fannst frekar erfitt að meðtaka að ég myndi ekki finna hana. Faðir minn er hins vegar enn á lífi, 66 ára gamall. Ég fékk sendan tengil á Facebook-síðu hans sem hann hafði verið nýbúinn að stofna.“

Var búinn að gefa upp alla von

Sigurður sendi föður sínum nokkur skilaboð á Facebook í byrjun árs 2017, en fékk engin svör.

„Ég var búinn að gefa upp alla von og hélt að hann vildi ekki vita af mér. Í lok júní bárust mér skyndilega skilaboð frá honum,“ segir Sigurður. „Ég fékk mun meiri upplýsingar en ég hafði gert mér vonir um. Hann hafði aldrei séð skilaboðin, því tæknin er ekki hans sterkasta hlið. Sonur hans hafði verið að fikta í síma hans og rakst af tilviljun á skilaboð frá mér og þekkti nafnið mitt strax.“

Sigurður fékk að vita meira um uppruna sinn.

„Hann sagði mér að þau hefðu gefið mig þar sem þau áttu bæði við mikinn áfengisvanda að stríða. Faðir minn varð edrú nokkrum árum seinna og leitaði að mér en fann ekkert. Hann hafði hugsað til mín og saknað mín á hverjum degi. Hann eignaðist tvo drengi, Donys og Adalberto. Það eru upphaflegu nöfnin mín. Hann lét skíra þá þessum nöfnum til að minnast mín og hafa mig nærri. Bræður mínir hafa alltaf vitað af mér. Faðir minn og bræður höfðu vonast eftir að ég væri einhvers staðar þarna úti, eins og hann orðaði það,“ segir Sigurður.

„Hann hefur margbeðið mig fyrirgefningar á að hafa yfirgefið mig. Hann segir það sína mestu eftirsjá. Hann er þó ánægður með það góða líf sem ég fékk og er þakklátur foreldrum mínum fyrir að hafa hugsað vel um mig.“

Sigurður hefur lengi spilað fótbolta í hinum ýmsu liðum í meistaraflokki karla á Íslandi og var talinn mjög efnilegur. Hann segist vita núna hvaðan þau gen koma, en faðir hans spilar enn fótbolta. Donys, bróðir hans, er markmaður og þjálfari.

Þakklátur

Sigurður hefur haldið sambandi við föður sinn og bróður, Donys, í gegnum Facebook. Fyrir nokkrum dögum töluðu þeir í fyrsta skipti saman á Skype. Sigurð dreymir um að hitta þá í eigin persónu.

„Það var ótrúleg upplifun að tala við hann á Skype. Ég er mjög þakklátur fyrir það. Við töluðum lengi og eigum vonandi eftir að ræða reglulega saman. Draumurinn okkar er að hittast. Annaðhvort að við förum út til þeirra eða þeir komi til Íslands, kannski þegar við vinnum í lottó,“ segir Sigurður.

„Að vita upprunann hefur gefið mér ótrúlega mikið. Þetta er lokapúslið sem hefur vantað í líf mitt. Ferlið hefur verið erfitt en ótrúlegar tilviljanir hafa hjálpað okkur á leiðarenda. Ég veit að erfitt er fyrir ættleidda einstaklinga frá Gvatemala að finna ættingja sína. Mín ferð til hinnar fjölskyldu minnar hefur verið hálfgert kraftaverk.“

dv.is - Sigurður var búinn að gefast upp: Þá gerðist kraftaverkið - Fann lokapúslið sem vantaði í líf hans - „Ég bjóst aldrei við þessu“ 


Svæði