Fréttir

Fréttatíminn - Bjóða ættleiddum frá Kóreu í rannsókn á uppruna þeirra

ÞÓRA TÓMASDÓTTIR

Hópur ættleiddra einstaklinga frá Kóreu er væntanlegur til landsins til að bjóða þeim sem ættleiddir hafa verið frá Kóreu til íslands að fara í genarannsókn, hafi þeir áhuga á að vita meira um uppruna sinn. Hópurinn er á vegum bandarísku samtakanna 325 Kamra og segist hafa rakið skyldleika í 10% tilfella.

Anna-Lena Engström er ein þeirra 200 þúsund barna sem ættleidd voru frá Kóreu eftir árið 1950. „Ég var ættleidd til Svíþjóðar og eins og svo margir, veit ég ekkert um líffræðilegan uppruna.“ Anna-Lena kemur til Íslands í febrúar á vegum samtakanna 325 Kamra. Þau vinna að því að safna lífsýnum þeirra sem ættleiddir hafa verið frá Kóreu til útlanda. Lífsýnin fara í gagnabanka sem notaður er til að rekja ættir og skyldleika ættleiddu einstaklinganna. Markmið samtakanna er að aðstoða þá sem vilja við að tengjast blóðforeldrum eða blóðskyldum ættmennum. Samtökin voru stofnuð í Bandaríkjunum en þangað voru 150 þúsund kóresk börn ættleidd. Velunnari samtakanna, Thomas Park Clemens, sem sjálfur var ættleiddur frá Kóreu, styrkir starf þeirra með því að borga fyrir genarannsóknirnar. Hvert próf kostar um það bil 100 dollara. Clemens er nokkuð þekktur viðskiptamaður í Bandaríkjunum og hefur skrifað bókina The Unforgotten War um reynslu sína af því að vera ættleiddur eftir Kóreustríðið. Að undanförnu hafa 325 Kamra fengið fjölmargar fyrirspurnir frá þeim sem ættleiddir voru frá Kóreu til Evrópu og ákvað Clemens því að borga fyrir genarannsóknir þeirra líka.

Anna-Lena hefur ásamt fleirum ferðast um Evrópu og safnað lífsýnum í gagnabankann. „Í desember fórum við til Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur og tókum um 170 sýni. Við bjóðum þeim sem hafa áhuga á því að fara í svona próf að gera það, þeim að kostnarlausu. Prófin eru frá Familyteedna en bankinn sem vinnur úr þeim kallast GEDmatch. Við verðum í Reykjavík að kvöldi föstudagsins 3. febrúar og þeir sem vilja, mega endilega hafa samband. Hingað til höfum við fundið nokkuð náinn skyldleika í um 10% tilvika.“ Hún telur að minnsta kosti 22 einstaklingar hafa verið ættleidda frá Kóreu til Íslands. Þóra Vésteinsdóttir er meðal þeirra fyrstu sem komu frá Kóreu til Íslands. „Þetta vekur ekki vonir hjá mér. Ég var borin út og tel því afar ólíklegt að nokkur leið sé að rekja hverjir blóðforeldrar mínir eru. Ég hef aldrei haft neina þörf fyrir að vita meira um þau og mun ekki nýta mér þetta.“ Önnur kona sem ekki vill láta nafns síns getið, segir rannsóknina áhugaverða. „Ég er ekki blóðskyld neinum í Íslendingabók og gæti því vel hugsað mér að að öðlast frekari upplýsinga um líffræðilegan uppruna minn, um hvort ég sé með einhverja undirliggjandi sjúkdóma eða annað slíkt. Ég hef samt enga þörf fyrir að finna blóðforeldra mína.“

Anna-Lena Engström svarar fyrirspurnum á Facebook og tölvupóstum á anna_lena.engstrom@yahoo.se

Fréttatíminn - Bjóða ættleiddum frá Kóreu í rannsókn á uppruna þeirra


Svæði