Fréttir

VÍSIR - Kólumbíumartröðin á enda:

Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson eru komin heim með dætur sínar tvær, Helgu Karólínu og Birnu Salóme, eftir ársdvöl í Kólumbíu. Hjónin ættleiddu stúlkurnar en það reyndist þrautin þyngri því ættleiðingarmálið fór fyrir dómstóla, þar sem það hefur verið í eitt ár. Hjónin sögðu í júní á þessu ári að baráttan við yfirvöld í landinu hafi verið martröð.

„Við erum komin heim!!!! Þetta er búið að vera hreint út sagt alveg meiriháttar dagur. Við erum svo glöð að vera komin heim með dætur okkar. Okkur finnst við vera svo óendanlega rík og erum svo þakklát fyrir yndislegu stelpurnar okkar. Loksins eru þær komnar heim til Íslands þar sem þær eiga heima, komnar með dótið sitt, rúmið sitt, föt sín og allt sem þeim vantar. Lífið er fullkomið!!!," segja hjónin á Facebook síðu sinni í nótt.

„Við lögðum af stað á þriðjudagskvöldið með Lufthansa til Frankfurt. Þar gistum við eina nótt og komum svo heim með Icelandair í dag. Þegar við komum til Íslands beið fjölskyldan okkar eftir okkur á flugvellinum. Það var alveg meiriháttar að hitta alla aftur og voru miklir fagnaðarfundir. Stelpunum þótti mjög gaman að hitta alla ættingja sína. Við fórum heim með fjölskyldu okkar og var haldin stór veisla í tilefni af komu Helgu og Birnu til landsins."

Og þau eru þakklát. „Kæru vinir við viljum þakka ykkur fyrir stuðninginn, allar fallegu kveðjurnar og hvatningarorðin, án ykkur hefðum við ekki getað gert þetta. Það hefur oft verið sagt að það sé gott að vera Íslendingur þegar eitthvað bjátar á og gætum við ekki verið meira sammála því," segja þau.

http://www.visir.is/kolumbiumartrodin-a-enda---vid-erum-komin-heim!!!!-/article/2012121209256?fb_action_ids=10152309932540468&fb_action_types=og.likes&fb_ref=top&fb_source=other_multiline&action_object_map=%7B%2210152309932540468%22%3A554936191187957%7D&action_type_map=%7B%2210152309932540468%22%3A%22og.likes%22%7D&action_ref_map=%7B%2210152309932540468%22%3A%22top%22%7D


Svæði