Fréttir

mbl.is - 49 börn ætt­leidd í fyrra

Mynd: AFP
Mynd: AFP

Alls voru 49 börn ætt­leidd á Íslandi árið 2019. Þetta eru aðeins fleiri en 2018 en þá voru ætt­leiðing­ar 46. Árið 2019 voru stjúpætt­leiðing­ar 31 en frumætt­leiðing­ar 18.

Frumætt­leiðing­ar frá út­lönd­um voru níu árið 2019, fleiri en síðustu tvö ár þar á und­an þegar þær voru ein­ung­is fjór­ar hvort ár en frumætt­leiðing­ar frá út­lönd­um höfðu aldrei verið svo fáar á einu ári. Með hug­tak­inu frumætt­leiðing er átt við ætt­leiðingu á barni sem ekki er barn maka um­sækj­anda.

Fyr­ir utan árin 2017-2018 voru frumætt­leiðing­ar frá út­lönd­um fæst­ar 1992 þegar ein­ungs fimm börn voru ætt­leidd að utan. Flest börn voru ætt­leidd frá út­lönd­um árið 2005 þegar 41 frumætt­leiðing átti sér stað. Und­an­far­in ár hafa flest ætt­leidd börn verið frá Tékklandi og árið 2019 voru einnig flest­ar ætt­leiðing­ar þaðan eða sjö.

Stjúpætt­leiðing­ar árið 2019 voru 31 sem er fækk­un um tíu frá ár­inu á und­an. Í öll­um til­vik­um var stjúp­faðir kjör­for­eldri en það hef­ur jafn­an verið al­geng­ast. Frumætt­leiðing­ar inn­an­lands voru níu árið 2019. Með hug­tak­inu stjúpætt­leiðing er átt við ætt­leiðingu á barni (eða kjör­barni) maka um­sækj­anda.

mbl.is - 49 börn ætt­leidd í fyrra


Svæði