Fréttir

Mbl - Tvö börn frá Tógó til Íslands

Ættleiðingarsamband Íslenskrar ættleiðingar við Tógó er nú orðið virkt að fullu og hafa tvö munaðarlaus börn frá Tógó nú þegar eignast fjölskyldur á Íslandi.

Það var hið nýstofnaða félag Alþjóðleg ættleiðing sem árið 2009 fór fyrir eigin reikning og óeigingjarnt sjálfboðastarf til Tógó með það að markmiði að koma á samböndum þar í landi. Í kjölfarið óskaði félagið eftir því við íslensk stjórnvöld að gerður yrði ættleiðingarsamningur milli Íslands og Tógó.

Eftir að Alþjóðleg ættleiðing sameinaðist Íslenskri ættleiðingu tók ÍÆ upp þráðinn gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Ögmundur Jónasson, ráðherra ættleiðingarmála, beitti sér fyrir því þegar hann var nýtekinn við embætti að kraftur var settur í að ná samningi við Tógó og Íslensk ættleiðing fékk löggildingu til að hafa milligöngu um ættleiðingar frá Tógó í febrúar 2011.

Að byggja upp ættleiðingarsamband og gagnkvæmt traust, sem er grundvöllur fyrir því að slíkt samband virki vel, er töluverð vinna. Í janúar fóru t.d. framkvæmdastjóri ÍÆ og Árni Sigurgeirsson stjórnarmaður til Tógó og áttu fundi með fulltrúum stjórnvalda og öðrum sem að ættleiðingarferlinu koma í Tógó.

Þessi vinna, sem staðið hefur síðan 2009, er nú að skila þeim árangri að tvö munaðarlaus börn frá Tógó eru að eignast fjölskyldur á Íslandi. Eitt barn er þegar komið heim og upplýsingar um annað barn eru komnar til landsins og fer fjölskyldan innan tíðar til Tógó að sækja það.

„Þetta er gríðarlega stór áfangi fyrir væntanlega kjörforeldra og mikilvægt skref á þeirri leið að fjölga ættleiðingarsamböndum íslands við erlend ríki,“ segir í fréttatilkynningu frá  Íslenskri ættleiðingu.


Svæði