Fréttir

Drög að gjadskrárbreytingum

Drög að breytingum á gjaldskrá Í.Æ. var til kynningar á opnum fundi fyrir félagsmenn þann 27. janúar síðastliðinn. Í kjölfar fundarins var boðað að breytingartillögur kæmu til kynningar á vef félagsins.

Hugmyndirnar voru áður kynntar í Fréttariti Í.Æ. í desember og fjallað var um þær í fundarboði sem birt var á vef félagsins og vísað var til á Facebooksíðu Í.Æ. Drög að breytingunum verða sett inn á læsta hluta isadopt.is á morgun og jafnframt fær Innanríkisráðuneytið þær til umsagnar eins og kveðið er á um í reglugerð.

Í Fréttariti Í.Æ. í desember var eftirfarandi frétt undir fyrirsögninni

Gjaldskrá endurmótuð, hækkun ekki ráðgerð:

Vinnuhópur undir forystu varaformanns og gjaldkera Í.Æ. hefur unnið að endurskoðun á gjaldskrá félagsins.

Markmiðið með vinnu hópsins er að einfalda gjaldskrána og gera hana aðgengilegri. Drög að tillögum um nýja gjaldskrá voru lögð fram á stjórnarfundi þann 30. nóvember.


Í tillögunum felast engar hækkanir. Gjöldin verða áfram þrjú og heildarupphæð gjalda sú sama en upphæðir einstakra gjalda breytast. Lögð er áhersla á að skýrt verði hvaða þjónustu greitt er fyrir með hverju gjaldi og getið verði um hvaða kostnað þurfi hugsanlega að greiða í stökum tilvikum, kostnað sem fer eftir eðli umsókna og aðstæðum hverju sinni.


Á fundi þann 13. desember var ákveðið að vinna að gjaldskrárbreytingu í samræmi við hugmyndir starfshópsins eftir samráð við félagsmenn. Í janúar verða hugmyndir að nýrri gjaldskrá kynntar á félagsfundi og afrekstur þess fundar verður kynntur í netmiðlum félagsins. Eftir hæfilegan umþóttunartíma, sem gefinn verður svo koma megi á framfæri athugasemdum og ábendingum, mun stjórn félagsins funda aftur um gjaldskrárbreytingar.

Hér er pdf skjal með hugmyndum að breytingum á gjaldskrá, eins og þær voru til umfjöllunar á fundinum 27. janúar.

 

Svæði