Fréttir

Ert þú vefarinn mikli?

Við höfum áhuga á að hressa upp á vefsetur Íslenskrar ættleiðingar og gera það öflugra, aðgengilegra og meira aðlaðandi.

Þess vegna viljum við forvitnast um hvort í hópi félagsmanna leynist öflugur vefari sem er með útlist- og tæknimál inngróin í fingurgómana og vill leggja félaginu sínu lið fyrir lítið sem ekkert nema ánægju og aðdáun í aðra hönd.

Ef þú ert vefarinn mikli og vilt leggja á þig þessa vinnu fyrir félagið þitt viltu þá vera svo vænn að hafa samband við Kristinn isadopt(hjá)isadopt.is eða Hörð hordur(hjá)isadopt.is ?


Svæði