Fréttir

Hamingjustund

Í morgun hittu Sigþór Örn og Ester Ýr drenginn sinn í fyrsta skipti á barnaheimilinu þar sem hann hefur dvalið og með því lauk áralangri bið þeirra eftir að eignast barn. Tilhlökkunin er búin að vera mikil og var sérstök tilfinning að vakna í morgun í síðasta skipti – barnlaus. Tilhlökkunin var svo mikil að þau mættu hálftíma of snemma á barnaheimilið. Sigþór Örn og Ester Ýr funduðu með sálfræðingnum og starfsfólki barnaheimilisins áður en þau fengu að hitta drenginn sinn, þau fengu helstu upplýsingar um hann og fengu tækifæri til að spyrja um hans daglega líf.
Eftir fundinn var farið inn í leikherbergi þar sem drengurinn var að leika ásamt öðrum börnum. Starfsfólkið benti honum á hver væru að koma og hann stökk af stað og kom valhoppandi í fangið á pabba sínum og mamman stóð við hlið þeirra og grét, þvílíkt augnablik.
Þau fengu að vera saman allan daginn, leika saman, borða og koma honum í rúmið.
Það var erfitt að bjóða honum góða nótt og skilja hann eftir, en þau fá að koma aftur snemma í fyrramálið. Allt hefur gengið eins og í sögu og því mega þau fá hann alfarið til sín í fyrramálið. 

Umsókn Sigþórs Arnar og Esterar Ýrar var samþykkt af yfirvöldum í Tékklandi 26. ágúst 2014 og voru þau pöruð við Hákon Erik 25. október 2015. Þau voru því á biðlista í 14 mánuði.

Þetta er er fimmtánda fjölskyldan sem sameinast á þessu ári og börnin orðin 19. Nú hafa 28 börn verið ættleidd frá Tékklandi til Íslands.


Svæði