Fréttir

Hjartans mál - kertakvöld í skammdeginu næsta þriðjudag í boði Pasnefndar

Hvað liggur þér á hjarta? Hefurðu spurningar sem þig langar að spyrja í skilningsríku umhverfi? Langar þig að deila ánægjulegri reynslu þinni eða áskorunum? Eða viltu bara koma og slaka á í notalegum félagskap?

Þá er komið að fyrsta spjallkvöldi ársins kæru félagsmenn.

Þriðjudaginn 18. janúar ætlum við að koma saman á skrifstofu Íslenskrar ættleiðingar frá kl 20-22. Þar munum við spjalla um þau hjartans mál sem við eigum sameiginleg og eiga notalega stund saman. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Með kærri kveðju og hlökkum til að sjá ykkur,
Pasnefnd Íslenskrar ættleiðingar


Svæði