Fréttir

Jólakort ÍÆ

Í ár ætlar fjáröflunarnefnd ÍÆ að gefa út jólakort.
  
Sandra Oddsdóttir, fædd á Sri Lanka, teiknaði fyrir okkur kortið en auðveldlega má líma inn í það mynd af litlum gullmolum þegar það á við. Tíu kort kosta 1000 kr.

Vinsamlega pantid tímanlega með því að senda póst á heimur@mt.is eða hringið á skrifstofuna í síma 588 1480 og athugið að benda vinum og vandamönnum á þennan möguleika ef þeir vilja styrkja gott málefni með kortaskrifum sínum. 

Kortin verða send út um miðjan nóvember en við getum tekið á móti kreditkorta greiðslum í gegnum síma frá 10.nóv.- 10.des. Kostnaður við sendinguna fer eftir staðsetningu móttakanda. 


Fjáröflunarnefnd vill leitast við að styrkja verkefni í þeim löndum sem Íslensk ættleiðing er í sambandi við.


Svæði