Fréttir

Óskabörn - ný bók um ættleiðingar

Óskabörn
Óskabörn

Bókin Óskabörn eftir Sigrúnu Maríu Kristinsdóttur er fyrsta bókin um ættleiðingar sem út kemur á Íslandi í 45 ár. Bókin, sem Bókaútgáfan Salka gefur út, samanstendur af viðtölum við Íslendinga sem kynnst hafa ættleiðingum af eigin raun. Viðmælendur eru bæði fagfólk og kjörfjölskyldur, og meðal þeirra má finna sálfræðinga, geðlækna, barnalækna, uppkomin ættleidd börn, foreldra og verðandi foreldra ættleiddra barna, afa og ömmur.

Sigrún María hefur starfað um árabil sem blaðamaður, er menntuð í ritlist frá Viktoríuháskóla í Kanada og bíður nú eftir sínu fyrsta barni frá Tékklandi. Hún verður með bókina til sölu á aðalfundi Nordic Adoption Council - NAC sem haldinn verður á Grand Hóteli í Reykjavík dagana 4.-5. september 2009.

Á baksíðu bókarinnar stendur:

Ættleiðing er viðkvæmt og afdrifaríkt ferli fyrir lítið barn sem eflaust mun allt sitt líf velta reglulega fyrir sér uppruna sínum og
örlögum. Miklu máli skiptir að hugað sé að öllum þáttum allt frá því kjörforeldrar ákveða að ættleiða barn og að sérfræðingar á borð við kennara, leikskólakennara, barnalækna og félagsfræðinga, séu samtaka í ættleiðingarferlinu og kynni sér það frá öllum hliðum.
Sigrún María Kristinsdóttir blaðamaður og verðandi móðir tekur hér saman mikilvægar upplýsingar varðandi alla þessa þætti. Meðal þess sem hún fjallar um er umsókn foreldra, ferðirnar út til að sækja börnin, þroski barnanna og uppeldi. Einnig er fjallað um huglægu þættina og þær tilfinningar og hugsanir sem bærast innra með börnunum og kjörforeldrunum.
Viðmælendur Sigrúnar Maríu eru fagfólk, ættleiddir einstaklingar og fjölskyldur þeirra. Sögurnar í bókinni eru einlægar, heiðarlegar og
upplýsandi svo bókin er í senn yfirgripsmikill leiðarvísir og hvetjandi lesning fyrir alla sem hafa áhuga á efninu, þekkja til
ættleiddra barna eða tengjast þeim á einhvern hátt.


Svæði