Fréttir

Skorað á ríkisstjórn

Fjölmennur félagsfundur Íslenskrar ættleiðingar, sem haldinn var miðvikudaginn 28. mars 2012, samþykkti eftirfarandi ályktun:

Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur frá árinu 2009 staðið í viðræðum við Innanríkisráðuneytið vegna beiðni um aukin fjárframlög til félagsins. Enginn ágreiningur er á milli aðila um þau verkefni sem ættleiðingarfélaginu er falið að annast með vísan til laga og reglugerða, né er uppi ágreiningur um hvað það kostar að sinna þeim verkefnum. Framlög til ættleiðingarfélagsins eru í engu samræmi við þennan kostnað. Innanríkisráðherra lagði fram minnisblað fyrir ríkisstjórnarfund hinn 9. mars 2012 þar sem málefni ættleiðingarfélagsins voru rædd. Ekkert kom út úr þeim fundi. Blasir því við að ættleiðingarfélagið þurfi að hætta við verkefni sem getur sett tilvist þess og hagsmuni félagsmanna í mikla óvissu. Þjónusta til félagsmanna verði skorin niður og ættleiðingarsambönd við erlend ríki sett í hættu.


Félagsfundurinn skorar á innanríkisráðherra og ríkisstjórn Íslands að tryggja að Íslenskri ættleiðingu, sem hefur verið falin framkvæmd á fjölmörgum þáttum Haagsamningsins um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingu milli landa, fyrir hönd íslenska ríkisins, verði gert kleift að uppfylla skyldur sínar. Jafnframt fer fundurinn fram á að innanríkisráðherra gefi án frekari tafa skýr svör um hvort af fjárveitingu verði í samræmi við drög að þjónustusamningi.


Svæði