Fréttir

Sterk sjálfsmynd

Spennarndi námskeið fyrir 10 til 13 ára stelpur.
Spennarndi námskeið fyrir 10 til 13 ára stelpur.

Kristín Tómasdóttir heldur sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stelpur 10-13 ára. Á námskeiðinu verður leitast við að kenna þátttakendum þrennt:

1)  Að þekkja hugtakið sjálfsmynd.

2)  Að þekkja eigin sjálfsmynd.

3)  Leiðir til þess að hafa jákvæð áhrif á eigin sjálfsmynd.

Áhersla verður lögð á áhrifaþætti sem geta haft mjög mótandi áhrif á sjálfsmynd stelpna. Notast verður við hugræna atferlisnálgun þar sem jákvæðar og neikvæðar hliðar þessara áhrifaþátta verða skoðaðar og þátttakendum kennt að einbeita sér á hinu jákvæða.

Dagskrá:

20. mars 2016   -   Hópefli og hugtakið sjálfsmynd kynnt.

27. mars 2016   -   Páskafrí.

  3. april  2016   -   Sjálfsmyndin og fjölskyldan.

10. apríl  2016   -   Sjálfsmyndin og vinir/vinkonur.

17. apríl  2016   -   Sjálfsmyndin sem ættleidd stelpa.

24. apríl  2016   -   Sjálfsmyndin og útlit/heilsa.

  1. maí   2016   -   Einstaklingsmiðuð “uppskrift” að jákvæðri  sjálfsmynd.

Námskeiðið verður frá kl. 9:30 til 11:00 í öll skiptin og verður  haldið í húsnæði Íslenskrar ættleiðingar, Skipholti 50 b.  Innifalið í verði er kennsla, kennslugögn og hressing á námskeiðinu (ávextir).  Í lok námskeiðsins fá þátttakendur kennslugögnin með sér heim. 

Þátttökugjald fyrir börn félagsmanna er kr. 24.900, en fyrir börn utanfélagsmanna er kr. 34.900. 

Skráning er á isadopt@isadopt.is.

Aðstoðarmaður Kristínar á námskeiðinu verður Kristín Lovísa Lárusdóttir sem hefur  víðtæka reynslu  að vinna með börnum og unglingum auk þess að vera ættleidd sjálf.

 


Svæði