Fréttir

Straumar og stefnur á Indlandi

Annar fræðslufyrirlestur ársins verður haldinn í hátíðarsal Tækniskólans (gamla Sjómannaskólans) þriðjudaginn 5.mars kl. 20 – 22

Hörður Svavarsson og Kristinn Ingvarsson munu segja frá ráðstefnu CARA um ættleiðingar frá Indlandi og heimsókn félagsins og Innanríkisráðherra til ISRC í Kolkata.

Anna Katrín Eiríksdóttir fulltrúi ÍÆ í stjórn NAC mun einnig segja frá síðasta fundi samtakanna sem haldinn var í Kaupmannahöfn á dögunum.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Frítt fyrir félagsmenn en kr. 1000 fyrir þá sem eru ekki skráðir í félagið


Svæði