Fréttir

Vísir.is - Brynja býður systur sinni til Íslands: „Hún hefur aldrei séð snjó“

Stefán Árni Pálsson skrifar

„Það er erfitt að þegja í níu mánuði,“ sagði Brynja M. Dan Gunnarsdóttir í Bítinu á Bylgjunni á miðvikudaginn síðasta. Lokaþátturinn af Leitinni af upprunanum var sýndur á Stöð 2 í gærkvöldi en þar var saga þeirra þriggja sem fjallað var um rifjuð upp og farið yfir seríuna í heild sinni.

Saga Brynju Dan vakti strax mikla athygli en hún fann líffræðilega móður sína og eignaðist í leiðinni systur. Alls eru níu mánuðir liðnir síðan ferlið hennar Brynju var tekið upp og gat hún ekkert tjáð sig um málið í þann tíma. 

En í lokaþættinum í gær kom fram að hana dreymir um að fá systur sína í heimsókn til landsins en sú ósk mun rætast í janúar. Brynju langar að fá hana til Íslands í skiptinámi.

„Hún er í háskóla þarna út og mig langaði ótrúlega að fá hana til Íslands í nám. Það eru víst ekki samningar á milli Íslands og Sri Lanka, en eins og ég segi við Sigrúnu í þættinum þá er ég ekki von að taka nei sem svari. Ég vaknaði síðan við viber-skilaboð í morgun um það að hún væri í fríi frá 10. janúar og sagði við mig að bóka fyrir sig miða,“ sagði Brynja í samtali við Gulla og Sigrúnu í Bítinu.

„Við heyrumst að minnsta kosti vikulega og reynum að tala sem mest saman og við getum. Það er auðvitað mikill tímamismunur. Það er svo fáranlegt að lýsa þessu en það er bara eins og við höfum aldrei gert neitt annað en að vera systur. Við grétum báðar úr okkur augun þegar við kvöddumst.

Umræðan um systur Brynju hefst þegar 2:43:50 er liðið að hljóðbrotinu.

Vísir.is - Brynja býður systur sinni til Íslands: „Hún hefur aldrei séð snjó


Svæði