Fréttir

Stjórnarfundur 15.12.2015

Fundur stjórnar Íslenskrar ættleiðingar, þriðjudaginn 15.desember 2015, kl. 20:00.

Fundinn sátu: Hörður Svavarsson, Elín Henriksen, Ágúst H. Guðmundsson, Elísabet Hrund Salvarsdóttir, og Sigrún María Kristinsdóttir.

Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri sat einnig fundinn.

Fundargerð ritaði: Elísabet Hrund Salvarsdóttir

Dagskrá:
1. Fundargerð.
Fundargerð stjórnar frá stjórnarfundi dags. 10. nóv. samþykkt með breytingum vegna úttekta á húsnæði fyrir félagið.

2. Mánaðarskýrsla
Mánaðarskýrsla framkvæmdarstjóra lögð fram.

3. Jólaskemmtun
Góð mæting var á jólaskemmtun félagsins 6. des, fólk skemmti sé almennt vel.  Ræddar voru athugasemdir vegna veitinga.

 4. Fjárhagsáætlun 2016
Drög að fjárhagsáætlun lögð fram og rædd.
Niðurstaða fundar:  Framkvæmdarstjóri sendir drög á Innanríkisráðuneytið samkvæmt þjónustusamningi.

5. Önnur Mál
Bréf frá Erni Haraldssyni.
Farið var yfir bréf frá Erni Haraldssyni þar sem óskað var eftir styrk vegna námskeiðs.
Niðurstaða fundar: Hitta þau sem koma að málinu og athuga hvernig hægt er að tengja það við félagið.

Fundi slitið kll. 21:40

 


Svæði