Fréttir

Viðeyjarferð 19.maí

Skemmtinefnd Íslenskrar ættleiðingar stendur fyrir fjölskylduferð í Viðey laugardaginn 19.maí.
Ætlunin er að hittast á Skarfabakka og taka ferjuna í Viðey klukkan 10:15. Byrjum á því að leika okkur á rólóvellinum og leikum okkur jafnvel saman í skipulögðum leikjum. Næst göngum við saman að fjörunni þar sem Viðeyjarnaust stendur. Þar ætlum við að borða saman nesti, sem hver og einn kemur með fyrir sig, skoða lífið í fjörunni og hafa gaman í góðum félagsskap. Ef veður er með þeim hætti að ekki er hægt að sitja úti, þá er aðstaða inni í Viðeyjarnausti til að setjast og borða. Heimferð er áætluð klukkan 14.30. 

Ferðin kostar ekkert, hver fjölskylda sér um að greiða ferjutoll og koma með nesti. En til að vita hversu margir mæta, þætti okkur vænt um ef fólk myndi skrá sig.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í góðum félagsskap þann 19.maí. 


Svæði