Fréttir

"sumar"leyfi

Skrifstofa félagsins verður lokuð frá 7. september til og með 15. september vegna sumarleyfa og rannsóknarleyfis.

Starfsfólk félagsins hafði í mörgu að snúast í sumar og var því ekki hægt að njóta sumarleyfa eins og ráð var gert fyrir. Félagsráðgjafi félagsins verður á sama tíma í rannsóknarleyfi í Tékklandi, þar sem hún mun heimsækja barnaheimili og sálfræðiteymi miðstjórnvalds Tékklands.

Eins og áður verður bakvakt vegna erinda sem ekki þola bið. Þeir sem þurfa að koma gögnum eða fá svör við fyrirspurnum er bent á að hafa samband fyrir 7. september.


Svæði