Fréttir

Að byrja í leik- og grunnskóla

Vorboðinn ljúfi.
Vorboðinn ljúfi.

Íslensk ættleiðing stendur fyrir fræðslu fyrir foreldra barna sem eru að byrja í leik- eða grunnskóla. Fræðslan verður haldin á skrifstofu félagsins Skipholti 50 b, 2. hæð til hægri.

Mánudagurinn 6. júní kl. 20:00.  

Grunnskólafræðslan. Leiðbeinendur eru Anna Katrín Eiríksdóttir þroskaþjálfi og sérkennari og Guðbjörg Grímsdóttir grunn- og framhaldsskólakennari. 

Miðvikudagurinn 8. júní kl. 20:00

Leikskólafræðslan. Leiðbeinendur eru Díana Sigurðardóttir og Sigurrós Ingimarsdóttir leikskólakennarar.

Þeim sem eiga ekki heimangengt er boðið upp á fyrirlestrana á netinu. Gjaldfrítt er fyrir félagsmenn en kostar kr.1000 fyrir aðra.

 


Svæði