Fréttir

Aðalfundur Íslenskrar ættleiðingar

Aðalfundur félagsins var haldinn 6. mars síðastliðinn á Hótel Hilton. Á fundinu var stungið uppá Gísla Ásgeirssyni sem fundarstjóra og gekk hann í það starf og stýrði fundinum með prýði.

Á fundinum fór formaður félagsins yfir skýrslu stjórnar frá liðnu ári.

Ársreikningar félagsins voru lagðir fram og fór formaður yfir helstu kennitölur í rekstrinum. Ársreikningurinn var svo borinn upp til samþykktar og var hann samþykktur athugasemdalaust.

Síðastliðin ár hefur ekki þurft að kjósa til stjórnar, þar sem stjórnarmenn hafa verið sjálfkjörnir. Að þessu sinni gáfu fjórir kost á sér til starfa fyrir félagið næstu tvö árin, en aðeins voru þrjú sæti í boði.

Stjórn félagsins er skipuð sjö stjórnarmönnum, þau eru:

Elísabet Hrund Salvarsdóttir, formaður
Ingibjörg Valgeirsdóttir, varaformaður
Lára Guðmundsdóttir
Lísa Björg Lárusdóttir
Magali Mouy
Sigrún Eva Grétarsdóttir
Sigurður Halldór Jesson 

Elísabet Hrund er fulltrúi félagsins í stjórn Nordic Adoption Council og er Ingibjörg varamaður hennar þar.
Ingibjörg verður fulltrúi félagins í stjórn EurAdopt og er Elísabet varamaður hennar þar.


Svæði