Fréttir

Alþjóðadagur jóga 21.júní 2021

Sendiráð Indlands fagnar 7. alþjóðadegi jóga í dag, 21.júní 2021 frá klukkan 17:00 til 19:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Á dagskránni verða ræðuhöld, jóga undir leiðsögn Guðrúnar Svövu Kristinsdóttur og horft verður á heimildarmynd um jóga,  Ayurveda og indverska menningu.

Allir eru velkomnir en vegna COVID 19 er fjöldi þátttakenda takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá sig á viðburðinn með því að senda tölvupóst á netfangið cons.reykjavik@mea.gov.in

Sjá nánar um viðburðinn hér 

Þeir sem ekki geta mætt en hafa áhuga á að fylgjast með geta horft á facebook eða á youtube
Facebook: @indiainReykjavik
YouTube: 'India in Iceland'


Svæði