Fréttir

DV - Ekki lengur eitt barn á par í Kína. Kínversk stjórnvöld breyta 30 ára gömlum reglum

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að breyta stefnu um barneignir í landinu. Breytingarnar hafa meðal annars það í för með sér að þar sem annað foreldrið er einkabarn má parið eignast annað barn.

Ströng regla var sett á fyrir um þremur áratugum síðan um að kínversk pör mættu aðeins eiga eitt barn hver. Hún var háð ýmsum undantekningum. Til að mynda var pörum í borgum leyft að eignast annað barn ef hvorugt foreldri átti systkini. Einnig var pörum í sveitum leyft að eignast annað barn ef fyrsta var stúlka. Pör sem brutu reglurnar þurftu að greiða háa sekt. Reuters segir frá þessu í dag.

Þessi stefna um eitt barn á hvert par gilti um 63% af íbúum Kína og er talið að stefnan hafi hindrað fæðingu um 400 milljóna barna síðan hún var tekin upp.

Afleiðingar fyrri stefnu

Undirbúningur fyrir breytingarnar hófst fyrir um fimm árum síðan þegar stjórnvöld fóru að hafa áhyggjur af því að þessar ströngu reglur kynnu að draga úr efnahagslegum vexti og hækka meðalaldur þjóðarinnar hratt.

Kínverkur verkalýður stendur nú í um 930 milljónum og mun árið 2025, samkvæmt spám, byrja að fækka um 10 milljónir á hverju ári. Á sama tíma er búist við að eldra fólk verði 360 milljón talsins árið 2030, en í þeim hópi eru um 200 milljónir í dag. Margir sérfræðingar telja að Kína gæti orðið fyrsta landið í heimi til þess að verða gamalt áður en það verður ríkt.

Vegna áherslu kínverskra stjórnvalda á fæðingu drengja er óvenju mikil kynjaskekkja í Kína. Margar fjölskyldur hafa látið eyða kvenkyns fóstrum eða borið stúlkubörn út til þess að tryggja að þeirra eina barn sé drengur. Um 118 drengir fæðast í Kína, fyrir hverjar 100 stúlkur. Meðaltal í í heiminum er um 103-107 drengur á hverjar 100 stúlkur.

http://www.dv.is/frettir/2013/11/15/ekki-lengur-eitt-barn-par-i-kina/


Svæði