Fréttir

DV - Hvernig ber fólk sig að þegar það ættleiðir börn

Kjörbörnin frá Sri Lanka
Kjörbörnin frá Sri Lanka

„Þau eru mjög vær, láta svona vita af sér þegar þau vilja drekka og láta skipta á sér," sögöu hjónin Sigurður Karlsson og Ellen Ólafsdóttir í viðtali í DV í gær en þau hjón ættleiddu tvö börn frá Sri Lanka þann 21. mars síðastliðinn.
  Eins og fram kom í DV í gær voru þau ekki ein um það. Alls voru kjörbömin fjögur sem komu til landsins um síðustu helgi og var það stór stund hjá þessum þremur fjölskyldum.
  En hvernig ber fólk síg aö þegar það vill ættleiða börn? Fá allir að ættleiða börn, kostar það eitthvað, hversu mörg böm hafa verið ættleidd frá svokölluðum þróunarríkjum á síðustu árum?

Félagið íslensk ættleiðing
Hjónin þrjú, sem ættleiddu börnin fjögur frá Sri Lanka þann 21. mars síðastliðinn, nutu aðstoðar félagsins Íslensk ættleiðing.
  Félagið starfar sem áhugamannahópur fólks sem vill ættleiða börn. Það var stofnað 1978 en fyrstu börnin voru ættleidd í kringum 1970. Þau börn voru frá Kóreu. 
  Síðan þá hafa verið ættleidd börn frá Guatemala, Líbanon, Indónesíu, Tyrklandi, Colombíu og nú síðast Sri Lanka, alls um 140 böm. Flest hafa börnin komið frá Indónesíu, 60 talsins, á árunum 1981 til 1983.

Ekki mörg hjón á biðlista
Þessa stundina munu ekki vera mörg hjón á biðlista hjá Islenskri ættleiðingu, svo vel hefur gengið að fá börn á undanfömum árum. 
  Íslensk ættleiðing er í sambandi við mann í Hollandi sem er tengiliður við þau lönd sem leyfa ættleiðingu. Samband hans byggist á gagnkvæmu trausti. Hann vinnur af hugsjón, vill eingöngu fólk sem er tilbúið að axla ábyrgðina og hefur alla pappíra í lagi en á Islandi eru gerðar miklar kröfur varðandi vottorð og leyfi.

Tilskilin leyfi
Þau leyfi, sem þarf að hafa, eru yfirlýsing frá dómsmálaráðuneytinu, leyfi barnavemdamefndar, hjónavígsluvottorð, fæðingarvottorð, sakavottorð, tekjuvottorð og læknisvottorð.
  Það vekur og athygli að hjónin, sem DV ræddi við í gær og komu með böm sín heim um helgina, eru ung að árum, um og innan við þrítugt. Hvorug hjónanna gátu átt böm saman.
  En sú stund, er hin raunverulega móðir afhendir barn sitt, hlýtur að vera stund tilfinninga. „Þetta var átakanleg stund," segja þau Engilbert Valgarðsson og Ingibjörg Birgisdóttir.

Lítið skólagengin og fátæk
Móðir barnsins þeirra, Sólveigar Engilbertsdóttur, var til dæmis lítið skólagengin og mjög fátæk. Hún hafði hreinlega ekki tök á að annast barn sitt.
  Margar mæðurnar eru líka búnar að brynja sig fyrir afhendinguna, sýna ekki tilfinningar sínar og eru í rauninni fegnar og ánægðar að einhver skuli geta tekið börnin að sér.
  Nú munu um 20 börn frá Sri Lanka búa á Islandi og fleiri eru á leiðinni.

Er hægt að velja sér strák eða stelpu?
En geta foreldrar valið um strák eða stelpu? Það er aöeins hægt að lýsa yfir ósk sinni, ósk sem hugsanlega er hægt að uppfylla. 
  Þannig báðu þau Engilbert og Ingibjörg um stúlkubam og fengu. Þau Sigurður og Ellen báðu um strák og stelpu og fengu það líka.
  Og það er ekki hægt að velja sér börn. Börnin eru valin fyrir foreldrana. Sjálf afhendingin fer fram í rétti þar sem gengið er frá ættleiðingunni, skrifað undir nauðsynleg skjöl og þess háttar.

Stúlkubörn frekar ættleidd
Í sambandi við val á börnum mun vera nokkuð algengara að stúlkubörn séu ættleidd á Sri Lanka. Mæðumar treysta frekar á að eiga drengina með afkomu síðari ára i huga.
  Sumir kynnu að spyrja hvort greiða þurfi fyrir bömin. Svo er ekki. Aðeins er greitt fyrir skjalakostnað, stimpilgjöld og þess háttar, auk þess sem lögfræðingurinn, sem annast ættleiðinguna, fær greidda þóknun fyrir sitt starf.

14 tíma flug — London — Sri Lanka
Og það er í rauninni ekkert smáferðalag að fara til Sri Lanka. Flestir fljúga héðan til London eða Amsterdam og þaðan í einni striklotu til Sri Lanka.
  Sem dæmi má nefna að ferðin frá London til Sri Lanka tekur um 14 1/2 klukkustund. Þau Engilbert og Ingibjörg flugu þá leiðina. Lent var tvisvar en í hvorugt skiptið var farþegum leyft að yfirgefa vélina.

Æðislegt að koma í norðangarrann
Svo var það loksins Keflavík: Örlítið kaldara en í þessum 35 stigum á Sri Lanka, eða, eins og Ingibjörg og Engilbert orðuðu það: „Það var æðislegt að koma í norðangarrann og finna allt þetta öryggi hér heima." Kjörbörnin eru líka svo sannarlega í öruggum höndum. Annars ætti kannski ekki að tala um þau sem kjörböm, Kóreubörn eða Indónesiubörn. Þau eru Íslendingar.
-JGH

DV - Hvernig ber fólk sig að þegar það ættleiðir börn


Svæði