Fréttir

Endurnýjun á löggildingu í Indlandi

Í haust barst okkur boð frá miðstjórnarvaldi ættleiðingarmála í Indlandi, CARA, um að endurnýja löggildingu félagsins þar í landi.

Félagið hefur nú sent öll tilskilin gögn til Indlands og hyggst funda á fyrrihluta ársins með fulltrúum CARA, en eins og kunnugt er hafa staðið yfir breytingar í landinu á fyrirkomulagi ættleiðingarmála. Indverjar vinna nú að því að gera kerfið sitt miðlægt eins og það er t.d. í Kína og þar með mun ÍÆ hætta fá upplýsingar um börn beint frá einstökum barnaheimilum.

Þetta eru ákveðin tímamót því samstarf Íslenskrar ættleiðingar við barnaheimilið í Kolkata (Kalkútta) á Indlandi sem vinur okkar Anju Roy stýrir núna hófst árið 1987. Við munum örugglega halda áfram að eiga gott samstarf við Anju og hennar fólk um ókomin ár og það er gaman að minnast á í þessu samhengi að skuldir ÍÆ við Anju og barnaheimili hennar, sem voru verulegar, voru allar gerðar upp í janúar á þessu ári.


Svæði