Fréttir

GLEÐILEGT ÁR

Við óskum öllum félagsmönnum gleðilegs árs og þökkum fyrir allar hlýju jólakveðjurnar og myndir af yndislegum börnum.

Árið byrjar vel, með upplýsingum um barn frá Kína þar sem um flýtimeðferð umsækjenda er að ræða. Upplýsingarnar bárust 3. janúar. 

Einnig eru fyrstu börn ársins komin heim, það er hópur 15 sem kom heim 4. janúar með 5 yndislegar nýjar dætur. Ferðin gekk vel og var fjörug því í hópnum voru þrjár u.þ.b. fjögurra ára systur að eignast litlar systur og því var þessi hópur fjölmennur á heimleið.  

Vonandi eignast mörg börn heimili á Íslandi á þessu ári.


Svæði