Fréttir

Hamingjustund

Freydís, Jana, Atli og Katrín stóra systir.
Freydís, Jana, Atli og Katrín stóra systir.

Í dag sameinaðist fjölskylda í Bogotá í Kólumbíu.
Atli og Kristjana fóru ásamt Katrínu Rut dóttur sinni til að hitta litlu systur í höfuðborg Kólumbíu.

Stundin þegar þau hittust í fyrsta skipti var töfrum líkust. Freydís María kom inn í herbergið til þeirra, horfði á pabba sinn, rétti honum hendina og strauk honum um andlitið. Hún sneri sér svo að mömmu sinni, horfði í augun á henni og strauk henni um vangann. Það sama gerði hún svo við systur sína. 
Í Kólumbíu er svo alltaf haldin lítil veisla til að fanga þessum áfanga. Þá er boðið er uppá kökur og kruðerí áður en fjölskyldan fékk að halda heim á leið. 
Myndin sem fylgir er tekin á skrifstofu ICBF strax eftir að fjölskyldan sameinaðist.

Umsókn Atla og Kristjönu var samþykkt af yfirvöldum í Kólumbíu 24. nóvember 2010 og voru þau pöruð við Freydísi Maríu 25. nóvember 2014. Þau voru því á biðlista í Kólumbíu í fjögur ár.

Þetta er fjórða fjölskyldan sem sameinast með milligöngu Íslenskrar ættleiðingar á þessu ári. Nú hafa 14 börn verið ættleidd frá Kólumbíu til Íslands með milligöngu félagsins.


Svæði