Fréttir

Heimsókn frestað

Sendinefnd frá ættleiðingaryfirvöldum í Kína sem var á leið í heimsókn til Íslands hefur nú frestað ferð sinni um óákveðinn tíma vegna jarðskjálftans þar fyrr í vikunni.

Barnaheimilin í Kína sem Íslendingar hafa ættleitt frá virðast hafa sloppið nokkuð vel við skemmdir í jarðskjálftanum og ekki er vitað um slys á börnum eða starfsfólki.


Svæði