Fréttir

Hjartans mál - Spjallkvöld

PAS-nefnd Íslenskrar ættleiðingar hefur staðið fyrir spjallkvöldum í vetur sem hafa hlotið heitið Hjartans mál.

Í apríl verða Hjartans málin fyrir ykkur kæru félagar sem eru að bíða eftir barninu ykkar. Þær eru margar spurningarnar sem vakna í biðinni löngu og nú gefst tækifæri til að hitta aðra í sömu sporum.

Við bjóðum alla hjartanlega velkomna til ÍÆ, í Austurveri á Háaleitisbraut, þriðjudaginn 20. apríl kl. 20.00 - 22.00 og vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Bestu kveðjur,
PAS-nefnd.


Svæði